Velkomin í Glóey.
Starfsfólkið í Glóey tekur vel á móti þér og býður þér að koma og líta á úrvalið í versluninni Ármúla 19.
Í Glóey fæst næstum allt fyrir rafmagnið eins og lampar, loftlljós, gólflampar, borðlampar, veggljós, útiljós, flúrljós, ljósaperur, dyrabjöllur, vírar, kaplar, rafhlöður, spennubreytar, borðviftur, loftviftur, baðviftur, breytiklær, fjöltengi, verkfæri, hitablásarar og fleiri minni heimilistæki. Einnig plaströr, plastbarkar, dósir, tengidósir, hólkar, ídráttarfjaðrir, öryggi, postulínsöryggi og gleröryggi svo eitthvað sé nefnt.
Sjáið það nýjasta í öryggisbúnaði: FakeTV
Fyrirtækið flytur inn vörur víðsvegar að úr heiminum t.d. frá General Electric og hefur yfir 1000 gerðir af perum til sölu, halogenperur, flúrperur, sparperur og flestar almennar perur.
Í verslun fyrirtækisins er einnig að finna fjölbreytt úrval raflagnaefnis m.a. innlagnaefni frá Simon, Presto, Berker, Siemens og Ticino.
