FakeTV

Verð: 9995,00 

Þjófafælan frá FakeTV®  www.FakeTV.com  íslenskar leiðbeiningar fylgja.

FakeTV®

Þjófafæla
 
FakeTV®   er þjófafæla sem líkir eftir birtunni frá sjónvarpstæki. Birtan frá FakeTV breytist óreglulega eins og birtan frá sjónvarpinu. Utanfrá að sjá lítur út eins og einhver sé heima að horfa á sjónvarpið, þannig að ef innbrotsþjófar hafa fengið augastað á íbúðinni, þá ættu þeir að vera fljótir að skipta um skoðun.
 
FakeTV þjófafælan hefur innbyggðan heila (rökrás) sem stýrir ljósmagningu frá fjölda LED ljósapera sem eru í tækinu. Perurnar gefa frá sér breytilegt ljós í mismunandi litum, nákvæmlega eins og það sem kemur frá sjónvarpstækjum. Birtan eykst og minnkar með óreglulegu millibili, líkt og þegar myndin breytist á sjónvarpsskjánum.
 
FakeTV er mjög einfalt í notkun. Það hefur innbyggðan ljósnema (fótósellu) sem kveikir á “sjónvarpsbirtunni” þegar dimmt er orðið úti. Hægt er að stilla FakeTV á að vera í gangi í 4 tíma eða 7 tíma. Einnig er hægt að hafa það alltaf í gangi, eða tengja það við tímarofa.
 
FakeTV er 8 cm á breidd og 6 cm á hæð, þannig að mjög auðvelt er að koma því fyrir hvar sem er.
 
Leiðbeiningar:
 
1. Beinið FakeTV að hálfgegnsæjum eða lítt gegnsæjum gluggatjöldum, rimlagluggatjöldum eða rúllugardínum, þannig að birtan frá tækinu sjáist utan frá, en ekki tækið sjálft. Einnig má notast við ógegnsæ gluggatjöld, en þá þarf hluti birtunnar að sjást utanfrá, t.d. sú sem fellur á milli gluggatjalda og gluggakarma. Ef tækið er notað í herbergi á efri hæðum, þar sem ómögulegt er að sjá inn, þá má sleppa gluggatjöldum eða nota aðeins þunn gluggatjöld (t.d. stórris). Aðalmálið er að ekki sé hægt að sjá utanfrá að birtan kemur frá FakeTV en ekki venjulegu sjónvarpi.
 
Á mörgum heimilum eru fleiri en eitt sjónvarpstæki, þannig að val um staðsetningu skiptir ekki meginmáli. Hins vegar er ekki órökrétt að staðsetja FakeTV á svipuðum slóðum og sjónvarpstæki heimilisins eru venjulega – en hafa þó vara á því að ekki sé hægt að sjá utanfrá hvort kveikt er á sjónvarpinu eða FakeTV.
 
Á tækinu eru fjórar stillingar. On (alltaf kveikt), Off (alltaf slökkt) og val um að láta ljósið loga í 4 tíma eða 7 tíma eftir að fótósellan kveikir sjálfkrafa á því þegar dimmir. Ekki kviknar á tækinu fyrir tilstilli fótósellunnar fyrr en komið er niðamyrkur.
 
2. Þegar dimmir snemma er passlegt að velja 7 tíma stillinguna, en 4 tíma stillinguna þegar ekki dimmir fyrr en t.d. eftir kvöldmat. Það þýðir að tækið slekkur á sér sjálfkrafa eftir þennan tíma. Ef stillingin er látin óhreyfð, þá kveikir tækið aftur á sér þegar dimmir næst. Birtan frá FakeTV er ámóta sterk og frá 27 tommu flatskjá.
 
Kveikja má dauft ljós í sama herbergi og FakeTV eftir að kviknað hefur á því með fótósellunni. Ef ljósið er of bjart slökknar hins vegar á FakeTV, en fer aftur af stað um leið og slökkt er á ljósinu. Hægt er að nota tímarofa til að kveikja á ljósi í sama herbergi og FakeTV, en gæta verður þess að ljósið kvikni ekki fyrr en öruggt er að FakeTV sé komið af stað. Ennfremur þarf að gæta þess að ljósið dragi ekki úr áhrifum FakeTV. “Sjónvarpsljósið” verður að sjást utanfrá til að fælingarmáttur þess virki.  Ef einhver vafi leikur á þessu samspili er betra að sleppa ljósinu alveg.
 
3. Gæta þarf að því að utanaðkomandi birta, t.d. frá ljósastaur, lýsi ekki inn í herbergið þar sem FakeTV er staðsett og komi þannig í veg fyrir að tækið fari af stað. Að sjálfsögðu er hægt að hafa FakeTV stöðugt í gangi (Velja “ON” stillinguna). Einnig má tengja það við tímarofa, þannig að kvikni og slökkni á tækinu á fyrirfram gefnum tíma. LED ljósaperurnar í FakeTV eyða mjög litlu rafmagni (3 W) og endast hundraðfalt lengur en venjulegar ljósaperur.
 
 
 
Almennt um þjófavarnir
 
Þjófar leita alltaf að auðveldustu leiðunum til að brjótast inn en forðast að fara inn í íbúðir ef þeir telja að einhver sé vakandi.
 
Mikilvægt er að loka og læsa dyrum og gluggum tryggilega. Það kemur þó ekki endilega í veg fyrir innbrot. Þess vegna er mikilvægt að gefa í skyn með samspili lýsingar og FakeTV að einhver sé heima – og sé að horfa á sjónvarpið. Tengja má ljós við tímarofa og sama er hægt að gera með FakeTV, eða láta tækið sjálft um að kveikja á sér þegar dimmir. Mikilvægt er að hafa í huga að drekkja ekki birtunni frá FakeTV með annarri birtu og gæta þess að tækið sjálft sjáist ekki utanfrá, heldur aðeins birtan frá því.
 
Það eru til fjölmörg önnur góð ráð til að verjast innbrotstþjófum. Nágrannarnir eru ómetanlegir í þeim efnum. Láttu þá vita þegar þú ferð í burtu. Passaðu ennfremur að utanaðkomandi sjái ekki ef póstur hrúgast upp fyrir innan bréfalúguna. Ef snjóar, fáðu nágrannana þá til að moka frá þínum dyrum líka.
 
Hvorki FakeTV né aðrar aðferðir til að láta líta svo út að einhver sé heima getur samt komið í veg fyrir innbrot. Saman geta þessar ráðstafanir hins vegar dregið verulega úr líkum á því.
 
Þótt ljós séu kveikt í íbúð þar sem enginn er heima, þá skapa þau ekki tilfinningu fyrir því að einhver sé á staðnum. Þar kemur FakeTV til skjalanna. Innbrotsþjófar snuðra í kringum hús áður en þeir ráðast til atlögu og ef þeir halda að einhver sé að horfa á sjónvarp, þá er líklegt að þeir hverfi frá.

 


© Raftækjaverslunin Glóey - Glóey ehf • Ármúla 19 • 108 Reykjavík • sími: 568-1620 • fax: 553-6426